Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 97 - Eins og eldgömul sápa
15/02/2016 Duration: 01h26minEftir hressandi hundasund í Dauðalauginni pæla Hullinn og Ævarinn í pésé húmor, Stebba steik, nýjum Refsara og hetjunum í sviðsljósinu, áður en þeir skella sér í eitt verulega feitt maraþonáhvaðertuaðglápa.
-
Hefnendurnir 96 - Rödd Rudds
08/02/2016 Duration: 01h19minHefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.
-
hefnendurnir 95 - Fyndnari á frönsku!
21/12/2015 Duration: 01h24minÆvorman snýr aftur í fang Hulkleiks og þeir tala með munnunum sínum um athyglisbresti, hvítasta óskarinn og fæðingu þjóðar, Kisuna Kevin og ómeðvitaðan brandaraþjófnað.
-
Hefnendurnir 94 - Ógn Og Scheving
14/12/2015 Duration: 01h36minÆvorMan er upptekinn við að bjarga heiminum Þannig að Hulkleikur fær Lobo Hjálmtýsdóttur til að halda rassafari hans volgu á meðan. Þau ræða um gagnsleysi giftinga, andlát Alans, orðaleiki Arnolds og einelti gegn elítunni í þessum athyglisverða og athyglislausa þætti.
-
Hefnendurnir 93 Kommittað Að Koma Með Komment À Comic Con
07/12/2015 Duration: 01h35minHetjurnar okkar vafra vammlausar inn í nýja árið og umvafnir vafasömum brókartöfrum púkakóngsins syrgja þeir fallna geimhetju, tala smá um veðrið, taka smá dansútúrdúr og taka síðan á sig rögg til að ræða um gúrmelaði nördahlaðborðs komandi árs
-
Hefnendurnir 92 - Börnin eru búin, allir eru gamlir (Áramótaannáll Hefnenda 2015)
30/11/2015 Duration: 01h14minHeimsumhullinn og Jólhann Ævar taka fyrir átján af helstu menningarþrekvirkjum ársins sem var að líða í þessum glimrandi skemmtilega, árvissa áramótaannáli hefnenda og halda ennfremar upp á afmæli frelsarans frá Manhattan.
-
hefnendurnir 91 - Það er auðvelt að fótbrjóta engil
23/11/2015 Duration: 01h42minHullaskellir og Ævasleikir heyrast símleiðis frá sitthvoru jólaævintýrinu og skeggræða jólasveina, jesú, star wars og önnur trúarbrögð í þessum viðburðarríka vetrasólstöðuþætti.
-
Hefnendurnir 90 - Það var svo sem auðvitað!
16/11/2015 Duration: 01h21minGætið ykkar! Nú byrja Hefnendurnir! Í dag fjalla þeir um hvað það er erfitt að vera frægur, bera saman nasista og daleka, óska sér fleiri jólagjafa frá uppáhaldsbúðinni sinni Nexus – áður en þeir halda á vit ævintýranna með epísku spjalli við sveppagreifann Stefán Pálsson um Sval og Val.
-
Hefnendurnir 89 - Brækur Sean Connery
09/11/2015 Duration: 01h36minHefnendum gengur brösuglega að hefja nýjan þátt í storminum, en þegar þeir komast af stað fara þeir á flug um kínverska drauga, ó-óviðeigandi framtíðarfatnað og öldrunaráhrif leikstjóra áður en þeir demba sér í kassann með nakta kallinum og gera sér Nexusjólagjafaóskalista. Munið síðan að kíkja...
-
Hefnendurnir 88 - Ekki borða rauðan snjó
02/11/2015 Duration: 01h05minHefnendurnir mæta fílelfdir til leiks með flottustu byrjun ever á podcasti. Sem þeir tóku reyndar ekki upp því græjan varð batteríslaus. Oh well. Þetta er samt góður þáttur. Jessica Jones, Hildur Knúts, ofvirkar draumastelpur og töfranegrar.
-
Hefnendurnir 87 - Later Slater
26/10/2015 Duration: 01h05minHeffararnir gjeffa og gjaffa um bardagalistir Bigga Löggu, þunglyndar kvenhetjur, ómerkilega járnhnefa og mottunet í austurlandahraðlestum áður en þeir gerast stjörnufræðingar í þessum þakkargjörðarþætti þar sem þakkað er fyrir að vita varla um hvað þakkargjörðarhátíð gengur útá. Eitthvað með fótbolta.
-
Hefnendurnir 86 - Innsetning njósnarans
19/10/2015 Duration: 01h05minHulli skilur ekki afhverju heimurinn er svona slæmur og Ævar reynir að útskýra það. Þegar þeir eru búnir að fatta hvernig á að bjarga heiminum ræða þeir um tíkarplánetu og Jason Bourne ég meina Jack Bauer ég meina James Bond.
-
Hefnendurnir 85 - Aldrei er góð China of oft China
12/10/2015 Duration: 01h09minHulkimons og Ævordúll líta í eigin barm er þeir athuga karlmennsku-einkenni sín, hvaða kvikmyndir kúra skal með kærustum yfir og hvernig þeir geta almennt orðið betri manneskjur og það sem mikilvægara er; betri Hefnendur. China China China China China China China China China China China…
-
Hefnendurnir 84 - Mó standöpp mó hekklíng
05/10/2015 Duration: 01h30minHetjurnar okkar skríða undan hrekkjavökuhelginni með fréttir af fleiri ótrúlegum sögum, mítladýrkun sinni og hvernig nasistarnir gerðu allt betra áður en þeir ávarpa ris hinna feykileiðinlegu frammíkalla.
-
Hefnendurnir 83 - 20 Hryllilegustu Hrollvekjur Sem Við Munum Eftir Í Augnablikinu
28/09/2015 Duration: 01h48minÞjakaðir af valkvíða telja Hulloween og Ævarúlfurinn saman sínar eftirlætis hryllingsmyndir í tilefni af Hrekkjavökunni. Ef þú vilt horfa á eitthvað spúkí eða gorí eða krípí eða bloddí um helgina þá færðu bestu uppástungurnar hér.
-
Hefnendurnir 82 - Kaldhæðna Salatblandan
21/09/2015 Duration: 01h24minHugleiðingin og Grímsævintýrið vesenast út í vonda folkið á útvarpi Sögu, pæla í hverjir passa rassa í Ásgarði, fetast útí framtíðarloforð Zemeckis og reyna að ákveða í hverju þeir eiga að vera næstu mánaðarmót.
-
Hefnendurnir 81 - Betra Er Að Gefa En Adam Sandler
14/09/2015 Duration: 01h17minHetjurnar okkar knáu ræða glataða gjafmildi, aðdáunarverða ómennsku og myndamyndasögur myrkrahesta áður en þeir dýfa sér á kaf í síðustu söludaga og hina eilífu spurningu; „af hverju Adam Sandler?“
-
Hefnendurnir 80 - Dýrin Í Latabæ
07/09/2015 Duration: 01h34minHinn Hugljúfi og Sá Ævislegi setjast niður í alrýmið og gubba úr sér vangaveltum um ofhlæði legósins, fráfall drumbkvendisins og fræðinga markaðsins. En setja svo á sig gáfuhjálminn er þeir gefa forsjárhyggjufasistum og anarkískum terroristum í Latabæ góðan gaum.
-
Hefnendurnir 79 - Tvö Typpi Og Milljón Mömmur
31/08/2015 Duration: 01h33minHullsubrauðið og Ævahnúturinn smjatta yfir smávægilegum forgangsatriðum á borð við heilsuvandamál Don Kíkóta, svarta spegilmynd Camerons og Íslenska skrímslamenn í erlendum stiklum en það er aðeinsforrétturinn því í aðalrétt er NOOOOOOOOOOOO!!!!!!
-
Hefnendurnir 78 - Furryinn í hænsnakofanum
24/08/2015 Duration: 01h33minHulkleikur er á myndasöguráðstefnu í Noregi þannig að Ævorman sló á þráðinn til hans yfir heimshöfin til að rabba um skyggnar mangastelpur, koddablæti karatemeistara og skilnaðarkrísu geðþekka grínistans Peta Holmes, áður en þeir félagar flytja greinargóða gamanhrollvekjuhugvekju.